miðvikudagur, 25 janúar 2012 16:13
Fimmtudaginn 26. janúar verður Skákdagurinn haldinn um allt land. Teflt verður í skólum, vinnustöðum, heitum pottum, kaffihúsum, úti á sjó, dvalarheimilum og leikskólum.
Skákdagurinn 2012 er tileinkaður Friðrik Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga og fv. forseta Alþjóða skáksambandsins. Friðrik, sem verður 77 ára þennan dag, var lengi meðal bestu skákmanna heims.
Af þessu tilefni ætlum við í Vesturbæjarskóla að draga fram taflsettin og tefla.






